4
Desember
Vaknað var
5:40 og gert sig kláran fyrir ferðina til Freiser Island. Hópurinn
kom saman á gistiheimilinu sem við vorum á um 50 manns og þar
skiptum við okkur í hópa og vorum við settir í hóp númer 1 með 4
stelpum frá Bretlandi, 3 frá Írlandi og svo var 1 strákur frá Chile
og svo ég og Peter. Hópurinn fór svo og náði í útilegu dótið og svo
var farið í innkaupaleiðangur það voru 2 tveir sem fóru og keyptu
inn því það var einfaldast. Við pökkuðum svo öllu niður og keyrt af
stað í ferjuna og rétt sluppum um borð og svo siglt á pramma yfir á
eyjuna. Ekið var svo frá höfninni (Moon Point) upp að
upplýsingamiðstöðinni og tekið vatn og ákveðið hvert ætti að fara.
Farið var svo upp að Lake Mckenzie þar sem var synt í ferskvatni og
borðaður hádegismatur. Farið var svo niður að Central Station og
labbað um regnskóginn þar og spjallað saman. Ekið var svo frá
Central Station og niður til Lake Boomanjin og labbað um og tekið
myndir og þaðan var svo farið niður að ströndinni skammt frá Dill
Village þar sem ákveðið var að gist en við vorum 3 bílar í
samfloti. Slegið var upp tjöldum og eldaður kvöldmatur en við
grilluðum svínakótelettur og pylsur með kartöflum. Haldið var svo
partý á eftir þar sem við sátum saman og sungum, farið í leiki og
spjallað saman. Síðar um nóttina heimsóttu okkur 2 snákar sem
langaði að skoða tjöldin okkar við litla hrifningu stelpnanna en
þeir voru farnir þegar við fórum að
sofa.
5
Desember
Flestir
vöknuðu snemma þar sem hitinn í tjöldunum var orðinn mikill og voru
flestir vaknaðir milli 6 og 7 um morguninn. Græjaður var
morgunmatur og tekin saman tjöldin. Er við ætluðum á stað þá var
bíllinn hjá Svíunum straumlaus og enginn með startkapla eða kaðal
til að draga þá í gang. Við þurftum að bíða þar til klukkan yrði 10
þegar það byrjaði að fjara út svo við klæmumst á bílunum um
ströndina. Bretarnir fóru af stað á einum bíl til að finna aðstoð
og við Svíarnir biðum og stoppuðum bíla til að spyrja hvort þeir
ættu startkapla eða kaðal. Það gekk eftir 1 klukkustund þar sem
jeppa kallar vorum með allar græjur. Það gekk ekkert að starta
bílnum með startköplum en ákvað ég og einn Svíinn að starta bílnum
þeirra og okkar á sama geyminum þar sem þetta voru dísel bílar. Við
rifum geyminn úr okkar bíl og störtuðum þeirra bíl og svo kipptum
við geyminum úr sambandi og settum bilaða geyminn í þeirra bíl og
svo sett sama geymi í okkar bíl til að koma þessum druslum í gang.
Okkar hópur keyrðum svo niður til Dill Vilage til að henda rusli en
við gátum það ekki nema borga fyrir þannig að við þurftum að keyra
með ruslið í bílnum alla leið upp til Eurong sem var er við
ströndina sem við gistum um nóttina en ströndin er 75 mílur að
lengd. En okkur var stranglega bannað fara í sjóinn við þessa
strönd þar sem hákarlarnir eru mjög grimmir á þessu svæði og étið
fólk. Við keyrðum svo frá Eurong til Maheno (Wreck) en
það er gamalt skipsflak og þar voru teknar myndir og næst var svo
stoppað við The Pinnacles sem er mjög sérkennilegt fjall og þar
tókum við myndir en hefði verið gaman að labba um en var tími til
þess þar sem við vorum komi svo langt á eftir hinum bílunum. Við
keyrðum svo upp til Indian Head en þar náðum við hinum bílunum og
borðuðum hádegismat. Keyrt var svo til Middle Rocks þar sem farið
var í náttúrulega salta sundlaug niður við ströndina og svo farið
til Indian Head og labbað um. Við vorum hópar á 4 bílum sem ákváðum
að gista á sama stað og fórum við frá Indian niður til Corroboree
Beach og þar var slegið upp tjöldum og eldað. Svo var spilaður
fótbolti á ströndinni eftir mat og haldið partý fram á
nótt.
6
Desember
Allir
vöknuðu snemma eins og venjulega vegna hita í tjöldunum, borðaður
var morgunmatur gengið frá tjöldunum og dótinu og beðið eftir því
að það færi að byrja að flæða út svo við gætum komist niður
ströndina. Við keyrðum frá Corroboree Beach og niður til The
Pinnacles en þar vegslóða upp að Lake Allom en við löbbuðum að
útsýnispallinum þar og horfðum yfir vatnið en það tók of langan
tíma að labba að vatninu til að synda þar sem við þurftum að ná
ferjunni í land seinna um daginn. Við fórum svo frá Lake Allom og
keyrðum vegslóða alla leið niður að Lake Mckenze aftur og syntum
þar í eina 2 tíma. Við hittum þar Dingo sem er villihundur sem hafa
ráðist á ferðamenn og drepið krakka en þeir drápu 12 ára krakka
þarna fyrir 2 árum, hann var að vappa um bílastæðið að leit að æti.
Ég og Peter löbbuðum saman frá bílastæðinu og niður að vatninu en á
leiðinni tókum við að Dingoinn var á eftir okkur um 30 m. Við
héldum áfram að labba og litum svo aftur til baka en þá var
hundurinn kominn 10 m frá okkur og Peter orðinn þokkalega smeykur
og ákvað að labba upp á tjaldsvæði þarna rétt hjá en hélt áfram
niður að vatni og hundurinn á eftir mér og var kominn eina 2 m frá
mér þegar ég mæti tveimur mönnum og hundurinn stökk eitthvað inn í
skóginn þegar hann sá mennina en mér var svo sem ekkert farið að
vera sama rétt áður en ég mætti mönnunum. Borðaður var hádegismatur
við Lake Mckenzie og keyrt niður að upplýsingamiðstöð þar sem við
biðum eftir að komast um borð á prammann. Við fórum svo með
prammanum yfir til Hervey Bay og skilað bílnum og dótinu. Við Peter
skráðum okkur inna á gistiheimilið skrifuðum mail, fengum okkur að
borða og komum við á einum pub í leiðinni áður en farið var heima
að sofa.
7
Desember
Við Peter
vöknuðum við öll lætin í þeim sem voru að fara í ferð til Freiser
Island þá sömu og við fórum í. Við fórum og fengum okkur morgunmat
og skráðum okkur út af gistiheimilinu en það passaði akkúrat þegar
við komum úr bænum, tókum við rútuna út á flugvöll og flugum frá
Hervey Bay til Sydney sem var 2 tíma flug. Kim náði svo í okkur
Peter á flugvöllinn í Sydney.
8
Desember til 13 desember
Ég vaknaði
snemma til að fara upp í SELC en dagurinn var mjög afslappaður en
eftir skóla for ég og Peter á Coogee Beach og djöflast í sjónum. Ég
eyddi nú nánast allri helginni á Coogee Beach. Námið í SELC tók svo
við alla vikuna þar á eftir. 13. desember var haldið jólapartý á
vegum SELC og átti ég mið á það. Þessi dagur var nú frekar mikill
óhappa dagur hjá mér. Ég og Peter vorum búnir að mæla okkur mót við
pubb niður við Maritime museum klukkan 18:00. Ég fór niður að
strætóskýlinu sem var styst frá þar sem ég bjó en aldrei kom
strætóinn sem átti að koma og ég beið og beið svo kom loksins
strætó þarna og ég orðinn of seinn. Þegar vagninn fór að nálgast
miðbæinn var svo mikið af umferðateppum og ég varð enn seinni. Ég
ætlaði svo að taka ferjuna yfir til Maritime museum frá Sydney Cove
sem átti að fara eftir fimm mínútur. Ferjan ætlaði aldrei að komast
á stað og svo tók ég eftir því að ferjan var ekki að fara þá leið
sem hún átti að fara og höfðu þeir breytt skyndilega um áætlun og
bætt við viðkomustöðum. Ekki vildi betur til en að ferjan sigldi á
töluverði ferð á bryggjuna og farþegarnir köstuðust til um borð.
Ferjan stöðvaðist um nokkurn tíma þar sem kannað var hvort
einhverjar skemmdir urðu á ferjunni og svo haldið áfram en þegar
ferjan var að koma að Maritime Museum þá var ferjan ný farinn frá
bryggjunni og ég missti af jólapartýinu. Ég fór þá á pubba rölt
niður við höfnina í Sydney og slappaði af í staðinn. Það mátti svo
sem segja að þetta hafi verið frekar óhappa dagur hjá
manni.
14
Desember til 20 desember
Það var
lítið markvert sem gerðist nema að ég eyddi mestum frítímanum á
Coogee Beach og svo var litið á pubbana á kvöldin en þetta var
síðasta helgin hjá Peter í Ástralíu. Ég fór á laugardeginum niður í
China Town þar sem markaðurinn er og keypti restina af jólagjöfunum
og það sem ég ætlaði að kaupa handa mér. Á sunnudags kvöldið fórum
við Peter niður í miðbæ þar sem við fórum í Sydney Tower til að
skoða borgina að næturlagi og svo enduðum við á því að fara í
spilavítið í Sydney en það er stærsta og glæsilegasta spilavíti sem
ég hef komið inn í. Við spiluðum ekkert heldur
löbbuðum um og horfðum á hina tapa peningum. Peter flaug svo heim
til sín (til Tékklands) þann 19 des.
21 Desember
Þetta var
merkis dagur þar sem ég átti miða á jólatónleika í Sydney
Operahouse. Ég, Albert félagi minn frá Barcelona á Spáni og Brian
frá Suður Kóreu vorum búnir að mæla okkur mótt á pubb niður í bæ
áður en við færum á tónleikana. Tónleikarnir byrjuðu klukkan 19:00
en þar sungu einir 10 bestu óperusöngvarar Ástrala. Húsið að innan
er svo sem ekkert sérstakt bara frekar venjulegir innviðir í
stórasalnum þar sem við vorum en útsýnið á börunum þarna var
glæsilegt en annars er þetta frekar hrátt að innan en þetta er að
vissu leitið tákn borgarinnar. Eftir tónleikana fórum við nokkur og
röltum um bæinn og enduðum á risa veitingarstað upp á 47 hæð með
frábæru útsýni yfir borgina og svo snérist staðurinn í hringi
þannig að á meðan við vorum þarna fórum við tvo hringi og sáum yfir
alla borgina. Mæli með að fara á þennan stað til að taka myndir
yfir borgina frekar en Sydney Tower.
22
Desember til 25 desember
Ég kláraði
ensku kúrsinn 22. desember þannig að ég átti bara eftir að dvelja í
Sydney í 4 daga í viðbót. Ég fór á Coogee Beach og slappaði af á
ströndinni og einnig heima í sundlauginni. Peter, Kim og vinarfólk
þeirra voru með veislu á aðfangadag en það byrjaði fyrir hádegi og
stóð fram eftir degi en það var borðað endalaust og drukkinn bjór.
Á jóladag var frekar leiðinlegt veður helli rigning og svo þrumur
og eldingar fram eftir degi. Ég fór svo niður í bæ seinnipartinn
labbaði um China Town og fékk mér að borða. Eftir matinn rölti ég
svo á internet kaffi. Ég fór svo í partý um kvöldið til Brians
félaga frá Suður Kóreu og þaðan fórum við á diskótek og svo á stað
sem heitir Three Monkeys sem er vinsæll staður á meðal útlendinga í
Sydney. Þar var hljómsveit sem spilaði og skemmtum við okkur alveg
þræl vel.
26
Desember til 27 desember
Ég vaknaði
snemma 26 desember og kláraði að setja niður í tösku. Borðaði
hádegismat með fjölskyldunni og horfði á krikket leik milli
Ástralíu og Englands þar til Peter, Kim, Daniel og Rachel keyrðu
mig á flugvöllinn um tvöleitið. Ég flaug frá Sydney klukkan 16:30
og framundan var 8 tíma flug til Singapúr en er við flugum fyrir
Darwin svæðið í Ástralíu þá lentum við í miklu þrumum og eldingum
en maður sá eldingarnar út um gluggann á flugvélinni. Við lentum
svo í Singapúr í þrumum og eldingum og mikilli rigningu en þar var
stoppað í 2 tíma. Flogið var svo frá Singapúr til London sem átti
að taka 12 tíma og svo lentum við í þrumum og eldingum aftur þegar
við vorum komin rétt út fyrir Singapúr. Við lentum svo í London um
morguninn og höfðum þá verið á ferð milli Sydney og London í 23
½ tíma á leiðinni plús 30 mínútna bið út á flugbraut í
London áður en vélin fékk að koma upp að flugstöðinni. Á leiðinn
náði ég að sofa í eina 10 tíma og horfa á eina mynd 4 sinnum aðra 3
sinnum og svo horfði ég á friends aðeins. Ég fór beint og skráði
mig inn í flugið til Íslands. Ég tók svo flugið til Íslands klukkan
13:00 og leti 16:00 í Keflavík og dreif mig í gegnum flugstöðina
til að geta tekið rútuna frá Keflavík til Reykjavíkur þar sem ég
þurfti að vera mættur út á Reykjavíkur flugvöll klukkan 18:30 en
þetta reddaðist allt þar sem Sigríður frænka skutlaði mér frá
umferðamiðstöðinni og á flugvöllinn þar sem ég tók flug til
Akureyrar. Ég lent á Akureyrir 20:00 og hafði verið á ferðalagi í
45 tíma án þess að stoppa en þá hafði ég ekki reiknað tíma
mismuninn inn í en hann er 12 tímar á þessum
tíma árs.